Stúlkan brosir
votum
mjúkum vörum.
Rauður blómknappur
opnast undurhægt.
Drunur í bifhjóli
nálgast hratt.
Blómið breiðir út
döggvuð blöð
suðið í býflugu nálgast.