Þegar ég lít
í augun þín blá,
ég veit þá loks,
ég verð þig að fá.

Ég horfi á þig
hlæja svo dátt,
ég brosi og hugsa
um hve þú sért sátt.

Hlátur þinn vekur
upp týnda ró hjá mér,
ró sem ég fann
aðeins útaf þér.

Lengi hef ég leitað
eftir þeirri ró
sem ég þarf.

Veit það samt ekki þó
ég hafi fundið þig.



** Ljóð úr bókinni Metrophobia sem er væntanleg einhvern tímann eftir 1. okt. 2003 **