Komin heim.
Syfjuð, geispandi.
Nálgast rúmið mitt.
Hægt og hljóðlega.
Fingur mínir snerta sængina.
Höfuð mitt liggur á koddanum.
Loks ligg ég hamingjusöm.
Svíf blíðlega inn í draumaheim.

En þá heyri ég öskur…

Hrekk upp.
Lít í kringum mig.
Þar er enginn.
Fell aftur í svefnrofa.
Hugsa og dreymi.
Fílar, kanínur, tré, skuggi.

En þá heyri ég hróp…

Opna augun og lít í kringum mig.
Nátthrafnar, æpa á mig, reiðir.
Vilja hefnd.
Þora ekki nær.

Ég loka augunum.
Svíf enn einu sinni inn í draumaheim.
Blíðlega…