Sumar nætur
sneri hann
augunum við
eins og krókódíll.
Þá elskaði hann þig.
Þá spilaði
hann sinfoníur
á líkama þinn.
Syndgaði.
Á morgnana
áður en
hann sneri
sorgmæddur heim,
elskandi þig eina
lofaði hann.
Þá lást þú
eftir með
grátstafinn
í kverkunum,
tár hans á
koddanum.
Krókódílatár
á koddanum þínum.
Þá vonaðir
þú þó þú vissir,
um leið
og hann
lokaði dyrunum
að hann
elskaði hana
af öllu hjarta
með hinum augunum.
Gberg