Maður sem vaknar á morgnana
Maður sem fær sér kaffi
Maður sem kyssir konuna
Maður sem keyrir börnin í skólann

Kona sem vaknar á morgnana
Kona sem hellir upp á kaffi
Kona sem er kysst
Kona sem kveður börnin

Maður sem borgar reikninga
Maður sem leiðist í vinnunni
Maður sem hugsar heim
Maður sem gerir sitt besta

Kona sem þrífur húsið
Kona sem leiðist húsverkin
Kona sem hugsar til manns
Kona sem gerir sitt besta

Maður sem kemur heim
Maður sem kyssir konu
Maður sem fær sér að borða
Maður sem fer í heitt bað

Kona sem heyrir í manni
Kona sem kyssir mann
Kona sem eldar mat
Kona sem lætur renna í bað

Maður sem gerir sitt besta
Kona sem gerir sitt besta
Maður sem fer að sofa
Kona sem fer að sofa

Hversdagslegt sem skiptir máli
Hversdagslegt sem ekki allir hafa
Hversdagslegt sem er smámál
Hversdagslegt sem er stórmál

Allt skiptir það máli.