Í fangi hinnar
bjarteygðu blásumarnætur
blundar og grætur
ein visnandi rós.
Daggperlur glitskærar
drjúpa af blöðum
döpur og kvíðafull
brúna hennar ljós.

Ég vil að hún vakni
vaki og lifi.
Mín sárþreytta sölnaða
sál—þyrnirós.