Ég sá fossinn
og ég gekk að honum,
leit upp
og sá hvað hann var hár
og á stanslausri niðurleið
alveg eins og líf mitt.

Ég sá blómið
og gaut augunum að því,
leit niður
og sá hvað það var lítið
og það vex þar til það fölnar
alveg eins og ég.

Svona erum við lík,
náttúran og ég.