Minn hugur dvelur
við myrkrið djúpa dökka
yndisvana augun trega
andlit ljúft og ljósa lokka
lítinn dreng er við mér hló
brosið hans og lundin létta
allt er horfið heims um stig
sakleysið á brott er farið
sökin þyngri en bera kann.
Hvers vegna?, ég græt og þrái
hvers vegna var það einmitt hann?