Hann er gáfaður,
mikils metinn,
þekktur, frægur,
dáður, dýrkaður,
elskaður, eltur,
frábær, yndislegur,
æðislegur, dásamlegur,
glæsilegur, góðlátlegur

og þó. . .

er hann heimskur,
lítils metinn
ófrægur, lítt þekktur,
hataður, eltur,
illur, vondur
slæmur, gráðugur,
eigingjarn, ljótur,
fáránlegur, leiðinlegur

og þó hvort tveggja í senn.