(Smá skáldskapur sem fæddist á sunnudaginn síðasta ….)

Blóð svita og þrettán tár,
kostuðu mig þetta ár.
12 sem féllu, og einu betur,
12 mánaða kaldur vetur.

Stundum voru mildir morgnar
- en minningarnar eru horfnar.
Grafnar undir hvítri fönn
og nagaðar af tímans tönn.

- Laurent/Keats