Ég stóð einn í víðáttu
—óendaleikans
hugur minn fjötraður
af gömlum syndum

ég fallinn var í myrkur
leitaði lífsins svo lengi
frelsið vitjaði mín
og leiddi í dans

í fjarska sé nú frið
ljóstár vökva augun
syndir hugans víkja
—endurlausn