–ég er ekki neitt
aðeins pínulítið peð
bara einn af milljörðum
eitt sandkorn á strönd

ég vil verða sterkur
og vakna af þessum blundi
–stökkva á fætur–
því barnið grætur
á ekki að borða
og mamman er veik

–því stökkva–
ekki fleiri á fætur

barnið enn það grætur.