Nú ertu farinn elsku frændi minn
frá okkar veröld lausn fékk andi þinn
en hátt á himni blika stjörnur tvær
hve brosi í augum þínum líkjast þær.

Barn ég var er sat ég við þitt borð
björt á svip er hlýddi á þín orð
af þér ég lærði að meta leyndan dóm
allt líf er heilagt sagðir þýðum róm.

Nú gengur þú til fundar Frelsarans
friðargjafans náðar sérhvers manns
þar englar biðja í bláum himingeim
og bíða þess þú komir loksins heim.