Draumur Um Stúlku

Minna drauma drottning ertu,
Dásamleg og falleg mær,
Svo hjá mér ætíð örugg vertu,
Unga stúlka mér svo kær.
Mig að elska aldrei hættu,
Æfi þína helga mér;
Erfiðleika með brosi bættu
því bestur skal ég vera þér.

Stjörnur láttu lifa þær
Er lýsa’úr augum þínum.
Eru stolt mitt stjörnur tvær
Er stendur í faðmi mínum.
My life for Aiur!