Gefðu mér ráð
kæri faðir minn
gefðu mér ljós
svo ég rati í myrkrinu
gefðu mér vatn
svo ég geti hreinsað sár þín
gefðu mér fætur
svo ég sleppi undan brennandi kúlum
sem þyrmdu ei lífi þínu
gefðu mér styrk
svo ég geti lært
að elska þann
sem tók þína sál
—–