Hún var lítil og létt,og
sveif af himnum ofan.
Hún var gyllt á lit,og hafði
losnað frá lítilli stjörnu
á óskastund.
Hún kitlaði mig blítt,er ég
strauk henni yfir andlit mitt
og við teiknuðum saman ósýnilegar
myndir um ástina í huganum.
Þetta var lítill engill með
fjöður á óskastund.