Hjá öllum þeim manneskjum
sem ég mæti
sé ég bjartar sólir
lýsa upp vegi þeirra

Aftur á móti
sé ég enga birtu
eftir mínum vegi
aðeins dimmt myrkur

Ég vona bara
að þau muni eftir mér
og sendi nokkra sólargeisla
mína leið