Tregafull von

Tregafulla hjarta
Reynslunni ríkari
Engu gleymir
Glæður eru enn á lífi
Afturgöngur sveima, þó
Fljúga fuglar vona
Undir brjósti hlýju
Löngunar von vermir
Lífsins gleði neistar
Agnarögn af trú

Hjartað tregafulla
Játar lífsins hörku
Alltaf berst þó við
Rangindum að breyta,og
Til endaloka heims
Að boða kærleikstrú.