Ég beið og horfði á mosa vaxa útúr
nösunum á þér
Ég beið og varð gömul kona með týnd ár í augunum
Ég beið og þú varðst að moldu,
molnaðir fyrir framan mig

Á meðan ég beið þá bjó ég til drulluköku
úr jarðneskum leifum þínum
ég storkaði örlögunum og lét þig í sokk
ég vissi alltaf innst inni að þú værir
“drullukökusokkur”

og ég beið og beið….
næst ætla ég að taka númer…