Við leituðum lengi
að lífinu er áður hér var.
Í myrkrinu leyndist sú magt
að máttur þess þvarr.

Við gengum um dimman dal
með dára við hlið.
Sáum djöfla og drauga
er dönsuðu um Helvítis svið.

Í þrælanna fansi við þjáðumst
þjökuð og sveitt.
Bárum höldanna hlekki
er hlífðu oss ekki við neitt.

Við uppskárum angist og ótta
í áranna rás.
Í válogum vímunnar
veltumst um óhrein og hás.

En eymdin fæst upprætt
ef Almættið veitir oss líkn
og leysir oss loksins
und logandi djöflanna fíkn.