Við leituðum lengi
að lífinu er áður hér var
í myrkrinu leynist sú magt
að máttur þess þvar.

Við gengum um dimman dal
með dára við hlið
sáum djöfla og drauga
er dönsuðu um Helvítis svið.

Í þrælanna fansi þjáðumst við
þjökuð og sveitt
bárum höldanna hlekki
er hlífðu oss ekki við neitt.

Þeir öldu oss á veldi óttans
í áranna rás
er í válogum vímunnar
vöfruðum skítug og hás.

En eymdin tók enda
er Almættið veitti oss líkn
og leysti oss að lokum
frá logandi djöflanna fíkn.