Brotin spegilmynd Ég leit í spegilinn og brosti
Falleg, ung, fín og hrein

Ég vildi að hann sæi mína kosti
fá að vera með honum ein

Hann dró mig út í nístings frosti
Ég áttaði mig ekki, varð alltof sein

Í augum hans brann dýrslegur losti
með hulið fyrir vitum mínum heyrðist aðeins vein,
lítið kvein

Ég leit í spegilinn, í kaldhæðni brosti
Eldri, rifin , óhrein