Eftir langvarandi þurrka sumarsins
stígur nú þykkur, svartur reykur
upp frá skóglendum hugans.

Seinna, þegar ég lít aftur yfir,
undrar mig að sjá græna sprota
stingast upp úr sviðinni jörðinni.