Augu mín drukku í sig
andlit þitt
gæddu sér á því
eins og gómsætu víni
nutu kitlandi tilfinningar
unaðsvímunnar
og freyðandi fullnægingar
svalaðs lostans
töfrandi táldræga kampavín
árgerð ´67.
-Hve ég elska þig!