Eitt andartaks gáleysi
Er nóg……..Eitt orð
til að eyðileggja heilt líf.
Heilt líf sem tekur
að þurrka út eitt orð.
Hvílíkur máttur.
Eitt augnatillit sem
Uppörvar eða dregur niður
Eitt orð sem blessar eða bölvar.
Við höldum að við getum ekki neitt.
Höfum engin áhrif.
Eða séum ekki völd að neinu.
Opnum augun og sjáum,
Hlustum og heyrum
Tölum orð sem óma.
Gjörðir okkar birtast
Í fótspori okkar.
Við sjáum þær ekki alltaf
Því við hröðum okkur áfram
En þeir sem koma á eftir
Sjá þær og hnjóta yfir þær.
Við höfum máttinn
Og kraftinn til .
En nýtum það ekki sem skyldi.