Kattarfólkið leitar upp eftir veggjunum,
skuggar þeirra dansa við ruslatunnurnar.
Það leitar sér að bráð meðan þú staulast um strætinn,
leitar þér að bráð.

ung læða,
særð á hjarta og skemmd í huga
nuddar húsveggina á leiðinni heim úr bænum.
Þú sygtar út fórnarlambið,
beygir þig
Stekkur.

Eftir að hafa hremmt bráðina heldurðu heim á leið,
saddur og ánægður.