Hræðslan fæddist undir merki krabbans.
Það æxlaðist þannig
að hún kom í heiminn,
eins og við flest,
lítil og ræfilsleg.
En henni óx fiskur um hrygg,
í takt við vaxandi mein.
Hana verður seint hægt að stoppa,
hún vakir og vex
við söng æxlanna.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.