“Virkilega”,
ég er góður í
því að hlusta.
hún elskar að
tala, ég hlusta.

Síðan get ég líka
verið sammála,
samþykkt allt.

“hann kom svo illa fram við mig”
“mig langaði bara að eignast barn”
“svo hélt hann framhjá mér”
“karlmenn eru svín”

Og ég kem með
frasa ættaða
úr sjálfshjálparbókum.
þeir hljóma vel.

Hlustar ekki á hvernig
ég vinn þig á mitt band,
þú veist hvað ég er,
ég er svín,
ætla að fara illa með þig,
langar ekki til að eiga með þér barn
og
held framhjá þér ef mér býðst það.

Ég er allt sem þú vilt
að ég sé,
ég er að hjálpa þér……

Núna ertu búinn,
fullnægð,
þarft ekki lengur hjálp
og okkur líður vel.
Við erum svín.