Ég leita
að því sem ég sakna.

Ég sný bakinu
í það sem ég í raun elska.

Ég reiðist
þeim sem er nánastur mér.

Ég sakna
þess sem ég hata mest.

Ég gleymi
því sem ég þarf helst að muna.

Ég er mannlegur.