Sófinn gefur mér hlýlegt faðmlag
og andrúmsloftið klappar mér vinalega á kollinn
Nærveran er svo sterk og falleg

Læt ekki á mér kræla
og finn enga kvöð til þess

Í hugartómu algleymi svíf ég
og týni hvert einasta fallega augnablik
til geymslu á áberandi stað, innrömmuð

Ég er kettlingurinn þinn
gef þér alla mína aðdáun
og er þér þakklátur fyrir að vilja
taka mig að þé