Og núna hef ég kvatt þig.

Leiðir okkar sem áður lágu saman,
eitt augnablik,
í sögu heimsins,
hafa greinst í þræði
til austurs og vesturs.

Hvert sem þú annars
ætlaðir að fara,
skiptir engu.

Því fingur flétta
sál minni höfuðgildru
úr myndbrotum
og þögulli ást.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.