Svört er sól, sviðin mannaból.
Streymir blóð í
Fjandans feigðarslóð.
Drynur jörð er Dauðinn tyllir tá
í draugalega borg við Tígrisá.

Grætur barn, gáttir Heljar við.
Guðskross-farar gáfu engin grið.
lítill drengur líkn fékk ei
hjá þeim
sem limlestu og brenndu hans
skinn og bein.

Vér hjálpum þá–það er hið
minnsta mál.
Hendur kaupum, gerum við hans sál.
Við sem erum Guðs útvalda þjóð
–og ekki okkar sök
–þótt renni blóð.

Drynur jörð er Dauðinn tyllir tá
í draugalega borg við Tígrisá.