Það kláraðist allt sem ég beið eftir
eyddist allt sem ég átti
með þessu eina orði.

Hvað er eftir?
Framtíðin er óviss, lífið stórt gat.
Ljóðin gatslitin af hugsunum
sem líta svo asnalega út
eftir allt saman.

Hann er eftir, bjargvætturin, ljós mitt og líf.

Líf.

Biður ekki um neitt nema það sem eðli mitt býður mér að gefa
en gefur í staðinn svo miklu betri gjöf.
Líf.

Ég hélt að hann yrði á hvítum hesti, en ekki með stór, blá augu, rjóðar kinnar og tvær hvítar tennur sem birtast mér í brosi sem inniheldur allan heiminn!

Jú, mér verður bjargað.
Af mestu hetju allra tíma.