Ég er ennþá
ekkert nema litli krakkinn
sem hlakkaði svo til sumars
á hverju ári

Ég er ennþá
ekkert nema litla stelpan
sem beið svo eftirvæntingarfull
eftir Íslandi

Ég er ekkert nema;

Nema hvað að núna
ofsækir mig söknuður og þrá
og ég fæ aldrei aftur að hlakka til
í friði

Ég sakna svo litlu stelpunna