Sástu mig
þegar ég kleif til himins án bakpoka og nestis?
Sástu mig
þegar fuglarnir sungu fyrir mig eina, því að ég var allt?
Sástu mig
þegar jörðin reis undir fótum mínum svo að allir gætu séð undur mín?

Sástu mig
þegar ég bugaðist?
Sástu mig
þegar tónlistin hljóðnaði og skýjaborgirnar breyttust í blauta pappakassa
sem ég var neydd til að búa í
af því að það bauðst ekki annar samastaður?

Sástu mig
þegar ég grét?