Brástjörnur man ég, blikandi ást
brosið þitt mjallhvítar perlur
neistandi elding var nálægð þín
og nafnið sem ómfagur söngur.

Hjarta er brostið, höfug mín tár
þú hvarfst mér í æskunnar blóma
en eilífðin öll er ást mín til þín
sem Alfaðir ætíð mun geyma.