Hölt ég bíð í bleitu
Völt með votan innvið
Sölt þau kyssa kinnar
Perlur fyrir Páfann.

“Ó, þú hái herra”
Fló mín bæn til beina
Hló mér fíflskri, fuglinn
Frjáls í sinni fléttu.





Innför.

Fláráða öndina
fláði ég.
Söng mærðarkvæði
til dýrðar mörgæsum
og hrægömmum,
undir meðallagi.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.