Þegar ég klæðist
fallegu orðunum frá þér,
er ég ævintýraprinsessa.

Hrynjandi og hljómur
vefja mig silki
og satíni.

Borðar orðanna
binda slaufur í hár mitt.

Og mig klæjar ekki
undan heimagerðum
ullarbrókum.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.