Ég hata
þetta hatur,
sem ég
er búinn að skapa
í hausnum á mér,
þegar þú
keyrir, talar, borðar,
klæðir þig, labbar, brosir
og bara fokk sama
hvað þú gerir
ég hata þetta allt.

ég hata að hata
það sem þú
vandar þig við að
gera,
ég veit að allt sem þú
gerir,
gerir þú af
ást til mín.

Ég bara hata þig.