Ekkert svar  
Hvers vegna er ég ein, 
ein í þessum fólksfjölda? 
Ég spyr fólkið sem gengur framhjá, 
með Pampers bleyjur undir hendinni, 
leitandi að efni í hið fullkomna líf. 
En ég fæ ekkert svar. 
Hvers vegna læðist einmanaleikinn að mér, 
þegar að ég treð mér í sófann? 
Ég spyr fólkið sem gengur framhjá, 
með tannkremstúbur í vasanum, 
jórtrandi leður með stjörnur í augunum. 
En ég fæ ekkert svar. 
Hvers vegna strýkur enginn 
tárin burt af vanga mínum? 
Ég spyr sjálfa mig þegar ég 
geng framhjá, með augun negld í gólfið. 
En ég  fæ ekker svar. 
Og ég liðast í sundur, líkt og reykur.