Andstæður


Bíómynd.
Ungur, fallegur maður
talar
með mjúkri röddu
af ástríðu
um konuna sem hann elskar.
Ástina.

Raunveruleiki.
Maðurinn sem ég elska
talar
með sorgmæddri röddu
af leiða
um mig, sem hann elskar ekki.
Skilnaðinn.