-líkt og rokkara
sem villist
á klassíska tónleika,
popptónleika
og batl-keppni
til þess eins að fatta
að það voru engir rokktónleikar
þetta kvöld-
;líður mér

Eins og minn tími
sé ekki nú
og komi ekki
fyrr en kýr fara í dansskóla
og maurar verða seldir í sjálfsala