Í grænum kjól
kemur vorið
dansandi með sunnangolunni
um ljóskvik stræti og torg
en borgin nuddar stýrur úr augum
fer á fætur og býður sólinni kaffi
–sér til samlætis