Ert þú í raun og veru
sonur Guðs
spyr leikarinn í sjónvarpinu
Jesúm Krist.

Það eru þín orð
svarar Frelsarinn með bros á vör.

Jólatréð er sofnað
Það hallast ískyggilega
á aðra hliðina
og mér flýgur í hug
hvort það hafi líka
stolist í sherryið
sem var falið í þvottavélinni
á jólanótt

Rauð köngulló
er snyrtilega bundin um topp þess
en gulir götuvitar
lýsa dauflega á drúpandi greinum.

Úti sitja hrafnar
á ljósastaurunum
krunkandi eftir feita hangikjötinu
sem við hentum í ruslið
á aðfangadagskvöld.

Á svörtum himni
skín einmana óljós
– stjarna.