Ef ég væri stjarna
myndi ég skína fyrir þig,
lýsa þér leiðina
gegnum lífið.

Ef ég væri sól
myndi ég hita þig,
bræða ísinn
sem fyllir hjarta þitt.

Ef ég væri,rigningin
myndi ég úða dropunum
á þreytta sál þína
svo þú gætir blómstrað á ný.

Ef ég væri,Móðir Jörð
myndi ég halda þér
í faðmninum
þangað til þú værir öruggur.