Ótal margir lífsins leyndardómar,
liggja hér og þar á vegi þínum.
Þú gengur fram með augnatóftir tómar,
töltir eftir fastmörkuðum línum.

Og hvert sinn sem að færi gefst að finna,
eitt fjöldamargra lífsins tækifæra.
Þú neitar það að kanna og þér að kynna,
kargur þrjóskast áfram við að læra.

Og þannig stanslaust áfram líf þitt líður,
lítilsvirtur mönnum af og konum.
Sem dapurt gamalmenni dóms þú bíður,
og deyrð að lokum burt frá þínum vonum.