Líkt og hringir
á vatni gárast ljósið
á leið til hins óræða.

Stjarneindir glitskærar drjúpa
krystalstær dögg
augnsilfur himnanna.

Dauðadjúpt vatnið
flýtur mjúklega
yfir vitund sjálfs míns.

Maurildin sindra
í myrku yfirborðinu.