Sendi þetta ljóð reyndar inn fyrir rúmu ári en undir öðru notendanafni sem einhverra hluta vegna er nú óvirkt þannig að þetta fer inn aftur núna svo ég hafi nú allt á sama stað og í röð og reglu, eða svoleiðis…

Einn og aumur
allt er hljótt
Kuldinn klórar
komin nótt
Vín og vinir
veigagnótt
Út þó eigra
ofurrótt

Án þín er ég
ekki neitt
Dæmdur, dauður
dæmið breytt
Hjartað hrærist
hamast greitt
Því ég þrái
þig svo heitt