Þvæla er merk og mikil
þar sem kommúnismi ríkir yfir jöklum landsins
en kemst ei til byggðar
vegna nautnafans og kapítalisma.
Fram, þjáðir menn er mottó okkar allra
kynsvallra
því allt skal íslenskt heita.

Hetjudáð og frekjuskapur
illa farinn ruslakall
keypti dall
ertu að norðan?
Neitandi hann svarar
utan við sig leggst hann niður
og biður.

Er það mikil þvæla
að sú sæla
sem að okkur ber
brátt fer og kveður
eins og þetta veður
sem að sunnan þóttist vera
skal á kvið sig sjálfan skera
ef það til tíðinda telst
á meðal slíkra embættismanna?