Bárunnar blúndukögur
skrýðir dimmbláa
klettaströnd
þar sem svarthvítir
fuglarnir sveima
í hljómþýðum söngleik vindanna
úr þverhníptu bergi óma
ótal vonglaðar raddir
vorsins sígrænu drauma
hugur minn horfir og saknar
er ung ég undi og unni
–í faðmi þér
fagra eldborna eyja.